Snæfellsnes 4.fl ka

08.01.2012 18:47:33 / 4flokkurkarla

Futsal úrslit

Þá er 4.fl komin í úrslit í futsal - þó kannski ekki á þann hátt sem við vildum en það er ekkert sem við getum gert við því :lol:

KSI hefur gefið úr tvær helgar í febrúar þar sem úrslit verða spiluð. Þetta eru helgarnar 4. - 5. febrúar og 18. - 19.febrúar. Við bíðum spennt eftir frekari upplýsingum!

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2012 23:48:17 / 4flokkurkarla

Futsal 7.janúar í Ólafsvík

Það er mæting kl 11:00 í íþróttahúsið í Ólafsvík.
Staðfestið mætingu :lol:

» 17 hafa sagt sína skoðun

26.12.2011 20:54:18 / 4flokkurkarla

Samæfing

Það verður samæfing hjá strákunum á fimmtudaginn, 29.des, kl 16:10 - 18:00 í Stykkishólmi.
Látið endilega vita að þið komist :lol:
Munið svo futsal 7.janúar:p

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.12.2011 22:51:18 / 4flokkurkarla

Futsal 2012

Futsal riðillinn hjá 4.fl ka verður spilaður laugardaginn 7.janúar í Ólafsvík.
Samæfing auglýst síðar.
Þjálfari verður Palli.

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2011 13:29:48 / 4flokkurkarla

Leikur á laugardag 03.12.11

Sælir

Leikur á laugardag 03.12.11 í Akraneshöll kl: 15.30 mæting kl: 14:30.  Allir velkomnir.  Beðist er velvirðingar á hversu seint upplýsingar koma en ekki fékkst staðfesting fyrr.



» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2011 21:55:00 / 4flokkurkarla

Foreldrafundur - kl 20:00

Miðvikudaginn 14.september verður foreldrafundur hjá 4.fl ka haldinn í Grundarfirði kl 20:00 í Grunnskólanum.
Umræðuefnið er árið fótboltaárið framundar:lol:  og skipan ferðanefndar vegna fyrirhugaðar æfinga/keppnisferðar en 4.fl ka hefur farið annað hvert ár í ferð og núna er árið þeirra að byrja:)
Það er mikilvægt að iðkendalistinn sé réttur og því er settur hér inn listi yfir þá stráka sem Samstarfið er með á skráða hjá sér. Ef einhver er hættur eða ef þið vitið um einhvern sem hefur bæst í hópinn þá vinsamlegast látið vita á netfangið eygloj@simnet.is sem fyrst.

iðkendalisti 4.fl ka fótboltaárið 2011-2012
Aron Freyr Ragnarsson
Svanlaugur Emilsson
Helgi Sigtryggsson
Konráð Ragnarsson
Kristófer James Eggertsson
Leó Örn Þrastarsson
Sanjin Horoz
Sigurjón Kristinsson
Anton Reed Oliver
Elías Björnsson
Hermann Örn Sigurðs
Ástþór Andri Valtýsson

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.08.2011 07:32:24 / 4flokkurkarla

Snæfellsnes - ÍBV er síðasti leikurinn okkar og verður í Grundarfirði

Það er leikur hjá okkur strákar á fimmtudaginn18. ágúst á Grundarfjarðarvelli. Leikurinn hefst klukkan 15:00/þrjú svo það er mæting klukkan 14:00/tvö. Muna svo að skrá sig hér.
kv. Sóley


» 35 hafa sagt sína skoðun

05.08.2011 18:01:32 / 4flokkurkarla

Síðasti útileikur sumarsins er á næsta miðvikudag 11. ágúst við ÍR

Næsta leikur er við ÍR á ÍR-vellinum miðvikudaginn 11. ágúst. Við erum með rútuna og vantar bílstjóra. Muna svo að skrá sig inn hér.
kv. Sóley


» 27 hafa sagt sína skoðun

02.08.2011 11:02:21 / 4flokkurkarla

Næsti leikur er á fimmtudaginn 4. ágúst við Þrótt Rvk. BREYTTUR LEIKTÍMI LEIKURINN ER KLUKKAN 16:00 MÆTING KLUKKAN 15:00

Breyttur leiktími LEIKURINN ER KLUKKAN 16:00 OG MÆTING ÞVÍ KLUKKAN 15:00 LÁTIÐ ÞETTA BERAST STRÁKAR!

Þá er komið að næsta leik hann er við Þrótt Reykjavík á Ólafsvíkurvelli klukkan 17:00 mæting klukkan 16:00. MUNA AÐ SKRÁ SIG HÉR INN.
kv. Sóley


» 37 hafa sagt sína skoðun

18.07.2011 23:18:54 / 4flokkurkarla

Unglingalandsmót 2011

Skráning á ULM 2011 á Egilstöðum er hafin. Skráning er á www.ulm.is
Nánari upplýsingar eru hjá HSH. www.hsh.is


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.07.2011 23:45:01 / 4flokkurkarla

Samæfing

Samæfing í Grundarfirði miðvikudaginn 20.júlí kl 17:30.
Látið vita um mætingu 8)

» 29 hafa sagt sína skoðun

11.07.2011 13:39:40 / 4flokkurkarla

Nýtt merki Snæfellsnes!


Hér er nýtt merki Snæfellsnes sem mun prýða nýju búningana okkar!

» 15 hafa sagt sína skoðun

08.07.2011 00:03:04 / 4flokkurkarla

Næsti leikur er í Reykjavík miðvikudaginn 13. júlí

Þá er komið að síðasta leik fyrir hlé, leikurinn er í Reykjavík, við höfum rútuna og vantar bílstjóra. Strákar muna að skrá sig hér inn og láta vita ef eitthvert foreldri getur keyrt. Munið að kíkja á síðuna um nýju búningana og hvenær er hægt að máta þá.
kv. Sóley


» 29 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 14:54:11 / 4flokkurkarla

Nýjir keppnisbúningar!

Fótboltasamstarfið á Snæfellsnesi hefur ákveðið að taka upp nýtt kerfi í sambandi við keppnisbúninga.

Við erum að fá nýja búninga og nú munu iðkendur þurfa að kaupa sína keppnisbúninga.  Hver treyja verður merkt með nafni iðkenda og keppnisnúmeri en athugið að hvert númer getur bara verið á einni treyju í hverjum flokki.  Keppnissettið kostar 3000 kr og er í því treyja, stuttbuxur og sokkar! Tilboð þetta gildir til 31.júlí 2011.

 

Nýji keppnisbúningurinn verður til sýnis og sölu á eftirtöldum stöðum:

Í íþróttahúsinu í Ólafsvík (Víkingsbúðinni)föstudaginn 8.júlí og mánudaginn 11.júlí frá kl 9 til 17

Í íþróttahúsinu Grundarfirði þriðjudaginn 12.júlí frá kl 17:30 – 19:00

Í íþróttahúsinu Stykkishólmi miðvikudaginn 13.júlí frá kl 17:30-19:00

 

Hvað þarftu að gera?

Mæta á staðinn til þess að máta og panta.

Setja inná heimasíðuna hjá þínum flokki hvaða númer þú vilt fá. Mundu að skoða vel þannig að það sé ekki einhver annar búin að fá það númer sem þig langar í því aðeins einn í hverjum flokki getur verið með hvert númer. Númerin geta verið frá 1 upp í 99.  Kerfið er þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Mæta þegar þið fáið að vita að keppnisbúningarnir eru tilbúnir fá ykkar sett og borga 3000 kr.

 

Treyjurnar eru bláar með smá hvítum röndum. Þær verða merktar með nýju merki Fótboltasamstarfsins á Snæfellsnesi. Styrktaraðilar okkar verða einnig á treyjunum en það eru Landsbankinn og Fiskiðjan Bylgja HF. Þessir búningar eru frá Jako og eru eins og keppnisbúningar Mfl. Víkings.

 

Við vonum að þetta fyrirkomulag leggist vel í ykkur og að allir okkar iðkendur verði komnir í nýjar treyjur í ágúst. Munið að tilboðið gildir til 31.júlí 2011.  Mynd af treyjunni kemur vonandi á síðuna um helgina!

 

Hér fyrir neðan látið þið vita hvaða númer þið óskið eftir að verði á ykkar treyju. Munið fyrstur kemur fyrstur fær!

Ef einhverjar spurningar eru þá er hægt að hafa samband við Eygló í síma 863-0185 eða á netfangið eygloj@simnet.is


» 37 hafa sagt sína skoðun

05.07.2011 21:38:39 / 4flokkurkarla

Næsti leikur er á móti KR á Ólafsvíkurvelli

Næsti leikur hjá okkur verður á Ólafsvíkurvelli á móti KR. Leikurinn hefst klukkan 17:00 Mæting er klukkutíma fyrir leik klukkan 16:00 í íþróttahúsið í Ólafsvík. Muna að skrá sig hér inn.
kv. Sóley


» 24 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Heimsóknir
Í dag:  245  Alls: 52809